Sport

Cisse verður ekki seldur

Djibril Cisse
Djibril Cisse NordicPhotos/GettyImages

Rafa Benitez segir að Djibril Cisse verði ekki seldur frá félaginu eins og til stóð í kjölfar þess að hann fótbrotnaði illa í landsleik með Frökkum í gærkvöldi.

"Við höfðum vonast til að selja hann til annað hvort Marseille eða Lyon, en nú er ljóst að ekkert verður af því. Við ætluðum að nota peningana sem fyrir hann fengjust til að kaupa leikmenn, en við verðum að salta það. Þetta kemur sér auðvitað illa fyrir Cisse, en ákvörðun okkar var algjörlega tekin á faglegum nótum og við verðum ekki í vandræðum með að vinna saman þegara hann kemur aftur," sagði Benitez, sem ekki á von á því að sjá Cisse á vellinum á ný fyrr en undir jól.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×