Sport

Rooney er laus við meiðsli

Wayne Rooney
Wayne Rooney NordicPhotos/GettyImages

Sven-Göran Eriksson, landsliðsþjálfari Englendinga, segir að framherjinn Wayne Rooney sé alveg laus við meiðsli og geti spilað um leið og hann kemst í leikform. "Ég þarf að hugsa um það sem er enska landsliðinu og stuðningsmönnum þess fyrir bestu, en endanlegar ákvarðanir verða teknar af mér og Rooney sjálfum," sagði Eriksson, en ekki eru allir á eitt sáttir um það hvenær eigi að leyfa stráknum að byrja að spila.

Sir Bobby Charlton er einn þeirra sem eru lítt hrifnir af því að Rooney fari að spila svo snemma eftir fótbrot, en Charlton hefur auðvitað með hagsmuni Manchester United að leiðarljósi.

"Mér hefur fundist sem læknar séu ekki á einu máli um hvað skuli gera með Rooney og þó ég sé auðvitað að hugsa um hagsmuni Manchester United, er ég fyrst og fremst að hugsa um heilsu hans í framtíðinni," sagði Charlton.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×