Sport

Cisse missir af HM

Djibril Cisse verður ekki með á HM
Djibril Cisse verður ekki með á HM AFP
Franski framherjinn Djibril Cisse hjá Liverpool tekur ekki þátt í heimsmeistaramótinu með Frökkum. Þetta kom í ljós í kvöld eftir að Cisse var borinn meiddur af velli í æfingaleik gegn Kína og í ljós kom að hann er fótbrotinn á hægri fæti. Ekki er langt síðan Cisse fótbrotnaði illa í leik með Liverpool, en þá var um að ræða vinstri fót hans. Talið er að annað hvort Nicolas Anelka eða Ludovic Giuly muni leysa Cisse af hólmi í landsliðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×