Fótbolti

Shaun Wright Phillips veðjar á Cole og Crouch

Shaun Wright Phillips, leikmaður Chelsea veðjar á að þeir Joe Cole og Peter Crouch eigi eftir að verða innblásturinn fyrir enska liðið á HM í sumar. Þessi snaggaralegi leikmaður var ekki valinn í hópinn fyrir HM í sumar. Hann hafði þetta að segja.

"Cole er búinn að vera frábær í vetur og mér hefur alltaf mikið til hans komið. Hann hefur verið að leika vel með landsliðinu og er að vinna vel og leggja upp færi. Cole verður einn af þeim leikmönnum sem menn munu fylgjast vel með. Fyrir mér hefur Crouch alltaf verið frábær leikmaður. Síðan hann fór til Liverpool hefur honum farið fram og allir sjá það. Fyrir svona leikmann eins og hann vilja menn oft gleyma hversu mikið hann er að vinna fyrir liðið. Mín trú er að hann eigi eftir að standa sig vel á HM," sagði Wright Phillips.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×