Sport

Stórsigur Englendinga gefur tóninn fyrir HM

Peter Crouch fagnar mörkum sínum þessa daganna með sérstökum hætti.
Peter Crouch fagnar mörkum sínum þessa daganna með sérstökum hætti. AP

Peter Crouch skoraði tvö mörk í seinni hálfleik og innsiglaði þar með 6-0 stórsigur enska landsliðsins á Jamaíku í lokaleik sínum fyrir heimsmeistaramótið í Þýskalandi. Leikurinn fór fram á Old Trafford í dag og var kveðjuleikur Sven-Goran Eriksson á enskri grundu því hann hætti með liðið eftir HM. Fyrsti leikur Englands á HM verður gegn Paragvæ eftir nákvæmlega viku.

Peter Crouch skoraði fyrra mark sitt á 66. mínútu eftir sendingu frá félaga sínum í Liverpool-liðinu Jamie Carragher og það var síðan fyrrum leikmaður Liverpool Michael Owen sem lagði upp seinna mark hans sem kom rétt fyrir leikslok. Crouch gerir örugglega einnig tilkall til þriðja mark enska liðsins sem var í fyrstu skráð sem sjálfsmark. Crouch átti þá skot eftir hornspyrnu David Beckham sem virtist vera að stefna framhjá markinu þegar varnarmaður Jamaíka sparkaði boltanum í eigið mark.

Peter Crouch fékk gullið tækifæri til þess að skora eitt mark til viðbótar en hann skaut yfir úr vítaspyrnu á 82. mínútu og var þetta því annar landsleikurinn í röð hjá Englandi sem víti fer forgörðum því Frank Lampard lét verja frá sér víti í 3-1 sigri á Ungverjum í vikunni.

Þeir Frank Lampard og Michael Owen skoruðu fyrsta og fjórða markið fyrir enska liðið en í millitíðinni skoruðu Jamaíkamenn tvö sjálfsmörk eftir aukasppyrnu og hornspyrnu frá David Beckham. Staðan var 4-0 í hálfleik.

Það er flestum Íslendingum líklega í fersku minni þegar enska liðið vann 6-1 sigur á íslenska landsliðinu í lokaleik sínum fyrir Evrópumótið í Portúgal fyrir tveimur árum. Englendingar ætla því að leggja það í vana sinn að koma inn í stórmót með stórsigra á bakinu.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×