Sport

Lyon hefur áhuga á Cisse

Djibril Cisse er ósáttur við lífið í Liverpool og vill fara aftur heim til Frakklands
Djibril Cisse er ósáttur við lífið í Liverpool og vill fara aftur heim til Frakklands NordicPhotos/GettyImages
Jean-Michel Aulas, stjórnarformaður frönsku meistaranna í Lyon, útilokar ekki að félagið muni reyna að fá til sín franska framherjann Djibril Cisse frá Liverpool. Cisse er ósáttur í herbúðum Liverpool og hefur óskað eftir því að fá að ganga til liðs við Gerard Houllier og félaga í Lyon, jafnvel þó hann þurfi að taka á sig launalækkun. Það var einmitt Houllier sem fékk Cisse til Liverpool á sínum tíma þegar hann var knattspyrnustjóri í Bítlaborginni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×