Sport

Ribery er ekki til sölu

Hinn 23 ára gamli Ribery er mjög eftirsóttur
Hinn 23 ára gamli Ribery er mjög eftirsóttur NordicPhotos/GettyImages
Franska liðið Marseille hefur sent liðum sem eru á höttunum eftir kantmanninum Franck Ribery skýr skilaboð og segja að ekki komi til greina að selja hann. Frönsku meistararnir í Lyon hafa verið hrifnir af leikmanninum og sömu sögu er að segja af Manchester United en Pape Diouf, stjórnarformaður Marseille segir að hann verði ekki seldur fyrr en í fyrsta lagi eftir eitt ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×