Sport

Smicer verður ekki með Tékkum á HM

Vladimir Smicer síðastliðinn nóvember að fagna því að Tékkland verði með á HM '06.
Vladimir Smicer síðastliðinn nóvember að fagna því að Tékkland verði með á HM '06. MYND/AFP

Læknar tékkneska landsliðsins fundu blóðköggul í læri leikmannsins Vladimir Smicer. Þessi 33 ára fyrrverandi leikmaður Liverpool leikur núna í Frakklandi hjá Bordeaux.

Þjálfari Tékka Karel Bruckner þarf ekki að tilkynna inn nýjan leikmann í hópinn fyrr en sólarhring fyrir fyrsta leik þeirra 12. júní.

Líklegt þykir að miðvallarleikmaður Rangers, Libor Sionko, verði kallaður inn í hópinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×