Sport

Fortune í viðræðum við Celtic

Quinton Fortune er að skoða aðstæður hjá Celtic
Quinton Fortune er að skoða aðstæður hjá Celtic NordicPhotos/GettyImages
Suður-Afríkumaðurinn Quinton Fortune er nú staddur í Glasgow þar sem hann er í viðræðum við meistara Celtic. Fortune var á dögunum látinn fara frá Manchester United, en þessi 29 ára gamli miðjumaður hefur átt við þrálát meiðsli að stríða að undanförnu. Fortune segist hafa verið nokkuð hrifinn eftir heimsóknina, þar sem hann hitti meðal annars fyrir gamla félaga sinn hjá United, Roy Keane.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×