Sport

Dowie væntanlega til Charlton á morgun

Ian Dowie
Ian Dowie AFP

Breskir fjölmiðlar fullyrða að knattspyrnustjórinn Ian Dowie verði kynntur sem næsti stjóri úrvalsdeildarliðs Charlton á blaðamannafundi á morgun. Ef af ráðningu hans verður, má fastlega reikna með að lítil gleði grípi um sig í herbúðum Crystal Palace þar sem Dowie var áður við störf.

Dowie lét af störfum hjá Palace á dögunum og sagði helstu ástæðuna vera þá að hann vildi vera nær fjölskyldu sinni í austurhluta landsins, en eins og flestir vita er Charlton-liðið staðsett í Lundúnum rétt eins og lið Palace. Talið er víst að Simon Jordan, stjórnarformaður Palace, sem og stuðningsmenn félagsins verði æfir ef Dowie tekur svo við liði í sömu borg eftir allt saman.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×