Sport

Á sér draum um að spila með Barcelona

Frank Lampard langar einn daginn að spila á Spáni
Frank Lampard langar einn daginn að spila á Spáni NordicPhotos/GettyImages

Miðjumaðurinn frábæri, Frank Lampard hjá Chelsea, segist eiga sér draum um að spila einn daginn með Spánarmeisturum Barcelona, en kona Lampard er einmitt frá Katalóníu.

"Það yrði sannkallaður draumur að spila einn daginn fyrir Barcelona," sagði Lampard í viðtali við spænskt blað. "Ég hef hinsvegar bundið framtíð mína hjá Chelsea og þar hefur mér verið boðin framlenging á samningi mínum, sem sýnir það traust sem menn hafa á mér þar. Svo er líka verið að styrkja lið okkar enn frekar og því eru miklar og stórar áskoranir framundan hjá okkur," sagði Lampard.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×