Sport

Læknisskoðun Rooney flýtt

NordicPhotos/GettyImages

Forráðamenn enska landsliðsins hafa afráðið að flýta læknisskoðuninni sem sker úr um þáttöku Wayne Rooney á HM um eina viku svo hægt sé að kippa nýjum leikmanni inn í hópinn áður en fresturinn til þess rennur út. Rooney sjálfur er bjartsýnn á að ná að vera með á mótinu.

Það kemur því væntanlega í ljós þann 7. júní næstkomandi hvort enska landsliðið þarf að vera án stjörnu sinnar í Þýskalandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×