Sport

Redknapp semur við Portsmouth

Harry Redknapp fékk mikið hrós fyrir að halda Portsmouth uppi í úrvalsdeildinni í vor, því ekkert annað en fall blasti við liðinu um miðjan vetur
Harry Redknapp fékk mikið hrós fyrir að halda Portsmouth uppi í úrvalsdeildinni í vor, því ekkert annað en fall blasti við liðinu um miðjan vetur NordicPhotos/GettyImages

Knattspyrnustjórinn Harry Redknapp skrifaði í dag undir þriggja ára samning við úrvalsdeildarfélagið Portsmouth, en eldri samningur hans við félagið rann út í lok síðustu leiktíðar. Redknapp þótti standa sig vel eftir að hann tók við liðinu í annað sinn á ferlinum og undir hans stjórn slapp liðið við fall í 1. deildina með ótrúlegum hætti.

"Það er gott að vera loksins búið að ganga frá samningnum hans, því nú getum við farið að einbeita okkur að framtíðinni og við trúum að Harry sé maðurinn til að leiða okkur inn í hana," sagði stjórnarformaður Portsmouth.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×