Innlent

Níu fíkniefnamál á sama skemmtistaðnum

MYND/Róbert

Tólf minni háttar fíkniefnamál komu til kasta lögreglunnar í Reykjavík í gær og nótt, þar af níu þeirra á sama skemmtistaðnum. Í öllum tilvikum var um að ræða fólk sem var fíkniefni í fórum sínum og voru þau gerð upptæk og fólkinu sleppt að því loknu.

Nokkur erill var hjá lögreglu í nótt, bæði vegna slagsmála í miðbænum og útkalla vegna háreystis í heimahúsum. Lögregla þurfti einnig að hafa afskipti af fimm ökumönnum vegna gruns um ölvunarakstur, en einn þeirra ók á staur í Grafarvogi og flýði af vettvangi á tveimur jafnfljótum ásamt farþega. Þeir náðust þó og voru fluttir í fangageymslur en hefur verið sleppt og telst málið upplýst.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×