Sport

B-lið Englands mætir Hvít-Rússum í kvöld

Michael Carrick er einn þeirra leikmanna sem vonast eftir föstu sæti í byrjunarliði Englendinga
Michael Carrick er einn þeirra leikmanna sem vonast eftir föstu sæti í byrjunarliði Englendinga NordicPhotos/GettyImages

Nokkrir af leikmönnum enska landsliðsins sem eru að berjast við að vinna sér sæti í byrjunarliðinu fá tækifæri til að sýna úr hverju þeir eru gerðir í kvöld, þegar B-lið Englands tekur á móti Hvít-Rússum í æfingaleik.

Leikurinn var upprunalega ætlaður varamönnum enska liðsins, en mikil meiðsli lykilmanna hafa orðið til þess að nú þarf Eriksson að tefla fram nokkrum af sínum sterkustu leikmönnum til að koma þeim í leikæfingu. Reiknað er með því að Eriksson láti þá Michael Owen og Peter Crouch leika saman í framlínunni og þá fá menn eins og Ashley Cole væntanlega að spila í kvöld. Miðja enska liðsins mun væntanlega verða skipuð þremur Tottenham-leikmönnum, þeim Jermaine Jenas, Michael Carrick og Aaron Lennon.

Líklegt byrjunarlið Englands: James, Hargreaves, Carragher, Campbell, A Cole, Lennon, Jenas, Carrick, Downing, Crouch og Owen




Fleiri fréttir

Sjá meira


×