Sport

Pires líklega á förum

Pires virðist ekki ætla að gefa sig í baráttunni við að fá tveggja ára samning og nú bendir allt til þess að hann haldi til Spánar í sumar
Pires virðist ekki ætla að gefa sig í baráttunni við að fá tveggja ára samning og nú bendir allt til þess að hann haldi til Spánar í sumar NordicPhotos/GettyImages

Nú þykir allt benda til þess að franski miðvallarleikmaðurinn Robert Pires muni yfirgefa herbúðir Arsenal og ganga til liðs við spænska liðið Villarreal, en spænsk útvarpsstöð á að hafa haft eftir stjórnarformanni félagsins í gær að hann væri búinn að ganga frá málinu.

Pires neitaði að staðfesta að hann væri búinn að gera upp hug sinn um helgina og þótti það jafnvel benda til þess að félagi hans og landi, Thierry Henry, hefði sannfært hann um að skrifa undir eins árs samninginn sem liggur á borðinu fyrir hann í Lundúnum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×