Innlent

Færður á geðdeild eftir að hafa veifað hnífi

Maðurinn, sem lögreglan í Reykjavík handtók á leikskóla í vesturborginni, eftir að hann reyndist hafa hníf undir höndum þegar hann hugðist sækja barn fyrrverandi sambýliskonu sinnar var í gærkvöldi vistaður á geðdeild. Þegar maðurinn kom í leikskólann virtist umsjónarfólki sem hann gengi ekki heill til skógar þótt hann ógnaði engum og tókst því að tala hann til þannig að hann afhenti hnífinn. Var síðan hringt í lögreglu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×