Innlent

Tvennt slasaðist í bílveltu

MYND/Róbert

Tvennt var flutt á slysadeild eftir að jeppi valt í beygjunni á gatnamótum Suðurlandsvegar og Vesturlandsvegar um klukkan tvö í dag. Fjórir voru í bílnum en að sögn lögreglu var ökumaður jeppans á það mikilli ferð að hann náði ekki beygjunni og því valt bíllinn. Alls voru fjórir í bílnum en tveir fengu að fara heim að lokinni skoðun á slyssstað. Hinir tveir voru fluttir á sjúkrahús og eru þeir í rannsókn að sögn vakthafandi læknis. Hann segir ekkert hafa komið fram sem bendi til þess að fólkið hafi fengið lífshættulega áverka.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×