Innlent

Þarf að greiða milljónir í bætur

Konan sem lögregla handtók eftir langa eftirför í Reykjavík í fyrrakvöld og fjölda tilrauna til að stöðva hana má eiga von á að greiða fleiri milljónir króna í bætur fyrir það tjón sem hún olli.

Konunni var sleppt úr haldi lögreglu eftir skýrslutökur í gærkvöldi. Hún var undir áhrifum áfengis en fleira er talið hafa átt þátt í hátterni hennar. Konan olli miklu tjóni á ferð sinni og mátti litlu muna að hún keyrði á gangandi vegfarendur. Tryggingafélög bæta tjónið en eiga endurkröfurétt á konuna sem má einnig eiga von á ákæru frá hinu opinbera.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×