Innlent

Umferðarslys á Ólafsfjarðarvegi í gær

Einn var fluttur á sjúkrahús eftir árekstur tveggja bifreiða á Ólafsfjarðarvegi gærkvöld. Bílarnir komu úr gangstæðri átt og valt annar þeirra þegar þeir rákust saman. Ökumaður bílsins sem valt var fluttur á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri til aðhlynningar en meiðsli hans reyndust ekki alvarleg. Hann fékk því að fara heim að lokinni rannsókn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×