Viðskipti innlent

Óbreytt lánshæfismat Glitnis banka

Lánshæfismatsfyrirtækið Moody´s staðfesti lánshæfiseinkunnir þriggja  stærstu banka landsins í dag. Langtímaeinkunn Glitnis banka er A1 en skammtímaeinkunn er P1. Þá segir Moody´s horfur Glitnis banka stöðugar.

Þrátt fyrir þetta breytir Moody´s horfum varðandi fjárhagslegan styrkleika Glitnis úr stöðugum í neikvæðar, að því er fram kemur í tilkynningu til kauphallarinnar.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×