Viðskipti innlent

Svenn Dam skipaður forstjóri og varastjórnarformaður

Svenn Dam var í gær skipaður forstjóri og varastjórnarformaður 365 Media Scandinavia A/S.  Félagið er í eigu Dagsbrúnar hf. Svenn mun bera ábyrgð á uppbyggingu fjölmiðlastarfsemi í Danmörku en jafnframt kanna ný viðskiptatækifæri á sviði fjölmiðlunar á Norðurlöndunum.

Svenn Dam hefur starfað í fjölmiðlum í fjöldamörg ár. Hann hefur reynslu af stjórnun fyrirtækja bæði á dönskum markaði og alþjóðlegum mörkuðum, meðal annars hjá Jyllands-Posten og Metro International. Fyrsta verkefni hans mun verða að koma á fót daglegu fríblaði í Danmörku í líkingu við Fréttablaðið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×