Viðskipti innlent

Hagnaður Eskju 40 milljónir

Mynd/Elma Guðmundsdóttir

Eskja hf á Eskifirði var rekin með 40 milljón króna hagnaði á síðasta ári. Tekjur félagsins námu 2855 milljónum og lækka nokkuð á milli ára.  Rekstrargjöld voru 2152 milljónir og hagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði nam 703 milljónum sem er um 4% lækkun frá fyrra ári. 

Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að afskriftir ársins hafi numið 362 milljónum. Fjármagnsliðir voru jákvæðir um ríflega 31 milljón. Niðurfærsla hlutabréfaeignar í Íshafi ehf nemur 323 milljónum á árinu, reiknaðir skattar eru 8 milljónir og hagnaður því um 40 milljónir króna.

Heildareignir félagsins í lok árs voru 8631 milljón. Eigið fé var 1755 milljónir eða 20,3%.

Í tilkynningu frá Eskju segir jafnfram að um mitt síðasta ár var útlit fyrir að afkoma félagsins yrði betri en raunin varð. Aflabrestur varð í kolmunna seinni part ársins og tekjur félagsins því lægri en gert hafi verið ráð fyrir. Skip félagsins veiddu aðeins 48 þúsund tonn af kolmunn á liðnu ári, samanborið við 82 þúsund tonn árð 2004. Þá jókst tilkostnaður við veiðar. Móttekið hráefni til bræðslu var 150 þúsund tonn í fyrra samanborið við 161 þúsund tonn árið 2004.

Rekstri Íshafs ehf., sem sérhæfði sig í veiðum og vinnslu á rækju, var hætt síðastliðið haust. Ástæðan fyrir því var viðvarandi veiðibrestur, lækkandi afurðaverð og sterkt gengi krónunnar. Var því ákveðið að stöðva rekstur þess. Eskju er 34,4% og er félagið nærst stærsti hluthafinn í Íshafi ehf og hafði niðurfærsla hlutabréfaeignar í Íshafi veruleg áhrif á niðurstöðutölu rekstrar á síðasta ári.

Fram kemur að horfur núverandi rekstrarárs séu nokkuð óljósar. Loðnuvertíðin olli miklum vonbrigðum og verður afkoma í loðnuvinnslu mun lakari en undanfarin ár. Afkoman mun að miklu leyti ráðast af aflabrögðum í kolmunna og NÍ-síld. Almennt er verð á sjávarafurðum hagfellt og rekstrarskilyrði því góð ef veiðar ganga vel, segir í tilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×