Innlent

Pólverji áfram í gæsluvarðhaldi fyrir austan

Gæsluvarðhald yfir Pólverja, sem handtekinn var með fíkniefni á Seyðisfirði 7. mars síðastliðinn, hefur verið framlengt til 19. apríl. Þrjú kíló af hassi og nærri fimmtíu grömm af kókaíni fundust við tolleftirlit í bíl hans við komu Norrænu til Seyðifjarðar og var hann úrskurðaður í gæsluvarðhald til dagsins í dag.

Maðurinn neitar sök í málinu en hann hefur komið tvisvar áður til landsins á síðastliðnu ári. Rannsókn á máli hans stendur enn yfir að sögn rannsóknarlögreglu á Egilsstöðum en hún miðast meðal annars að því að kanna hvort maðurinn eigi samstarfsaðila hérlendis.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×