Viðskipti innlent

Lánshæfi ríkissjóðs staðfest

Alþjóðlega matsfyrirtækið Standard & Poor's staðfesti í dag lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs á langtímaskuldbindingum í erlendri mynt AA- og AA+ fyrir langtímaskuldbindingar í íslenskum krónum. Einnig var staðfest einkunnin A-1+ fyrir skammtímaskuldbindingar í erlendri mynt og íslenskum krónum. Horfur um lánshæfismatið eru stöðugar, að mati Standard & Poor's.

Í frétt fyrirtækisins er haft eftir Kai Stukenbrocks, sérfræðings hjá matsfyrirtækinu, sem segir að lánshæfiseinkunn Íslands byggist á stöðugu stjórnkerfi, mjög auðugu og sveigjanlegu hagkerfi ásamt góðri stöðu opinberra fjármála. Það sem haldi aftur af frekari hækkun lánshæfismatsins er bæði mjög mikil erlend fjármögnunarþörf og mjög miklar erlendar skuldir hag­kerfisins.

Þá segir jafnframt að opinber fjármál standi áfram traustum fótum. Vegna mikils hag­vaxtar, tekna af einkavæðingu og tekjuafgangs ríkissjóðs til og með 2006 munu heildarskuldir hins opinbera halda áfram að lækka ört og verða um 21 prósent af VLF árið 2009 samanborið við 50% árið 2001.

Í frétt matsfyrirtækisins kemur fram að erlend fjármögnunarþörf hagkerfisins sé ein sú mesta sem um getur meðal ríkja sem hafa lánshæfiseinkunn en hana megi rekja til mjög mikilla erlendra skulda á öllum sviðum efnahagslífisins og mikils við­skiptahalla. Þrátt fyrir það ætti lok stórframkvæmda, minnkandi innlend eftirspurn og vaxandi útflutningur að draga töluvert úr viðskiptahallanum.

Þá gætir vaxandi ójafnvægis í þjóðarbúskapnum vegna vaxandi innlendrar eftirspurnar sem knúin sé áfram af væntingum neytenda og fyrirtækja, vegna mikilla fjárfestinga í orkufrekur iðnaði og útlánaþenslu. Þrátt fyrir meiri tekjuafgang hjá hinu opinbera árin 2005 og 2006 hafi peningamálastefnan borið meginþungann í mótvægisað­gerðum gegn áhrifum þenslunnar. Þetta auki líkurnar á ójafnri að­lögun þegar eftirspurnarþenslunni lýkur. Segir Kai að sköpum skipti að auka aðhald enn frekar.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×