Innlent

Maður sem stunginn var kominn úr lífshættu

MYND/Róbert

Maðurinn, sem var stunginn tvívegis í bakið á veitingastaðnum Gauki á Stöng í nótt, er úr lífshættu en hann hlaut mjög hættulega áverka á brjótsholi að sögn vakthafandi læknis. Líðan hans er eftir atvikum en hann er nú kominn af gjörgæsludeild á legudeild. Þær upplýsingar fengust hjá lögreglu að tveggja manna sem grunaðir eru um verknaðinn sé enn leitað.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×