Viðskipti innlent

Straumur kaupir í Funcom

Funcom.no
Funcom.no

Straumur-Burðarás hefur keypt 5,5 prósenta hlut í norska tölvuleikjaframleiðandanum Funcom sem framleiðir netleiki. Hluturinn var keyptur í lokuðu hlutafjárútboði en allur eignarhluti Straums er metinn á tæpar 800 milljónir króna.

Funcom er hástökkvarinn á norska hlutabréfamarkaðnum á þessu ári en markaðsvirði fyrirtækisins hefur aukist um 110 prósent frá áramótum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×