Sport

LeBron James með stórleik

LeBron James var í stuði gegn Milwaukee í nótt og náði þrennu með 32 stigum, 11 fráköstum og 11 stoðsendingum. Síðast þegar hann mætti Milwaukee skoraði hann 52 stig.
LeBron James var í stuði gegn Milwaukee í nótt og náði þrennu með 32 stigum, 11 fráköstum og 11 stoðsendingum. Síðast þegar hann mætti Milwaukee skoraði hann 52 stig. NordicPhotos/GettyImages

LeBron James átti stjörnuleik þegar lið hans Cleveland Cavaliers bar sigurorð af Milwaukee Bucks í NBA deildinni í nótt 91-84. James skoraði 32 stig, þar af 17 í fjórða leikhluta, hirti 11 fráköst, gaf 11 stoðsendingar og stal 5 boltum. Liðið varð þó fyrir áfalli í leiknum, því Larry Hughes fingurbrotnaði og verður frá í 6-8 vikur. Michael Redd var atkvæðamestur hjá Milwaukee með 28 stig. Varamenn Milwaukee skoruðu ekki eitt einasta stig í leiknum, en þetta er í fyrsta skipti síðan haustið 1970 sem það gerist hjá liðinu.

Dwayne Wade, leikmaður Miami, var einnig í stuði í gær og náði annari þrennu sinni á ferlinum, en það dugði ekki því Miami steinlá á útivelli gegn New Orleans Hornets 107-92. Wade skoraði 19 stig, hirti 10 fráköst og gaf 10 stoðsendingar, en tapaði reyndar 8 boltum í leiknum. Shaquille O´Neal skoraði einnig 19 stig og hirti 9 fráköst fyrir Miami. Metfjöldi áhorfenda mætti á leikinn í Oklahoma City og sá lið sitt fara á kostum gegn hátt skrifuðum andstæðingum sínum. Desmond Mason skoraði 24 stig fyrir heimamenn, David West skoraði 20 og nýliðinn Chris Paul skoraði 15 stig og gaf 9 stoðsendingar.

Toronto vann fjórða leik sinn í röð þegar liðið burstaði Orlando 121-97 og hefur nú virðist sem Kanadaliðið sé loksins að finna taktinn eftir skelfilega byrjun í vetur. Charlie Villaneuva skoraði 24 stig fyrir Toronto, en Jameer Nelson skoraði 31 stig fyrir Orlando, sem er persónulegt met. Orlando hirti aðeins 21 frákast í leiknum.

Boston sigraði Charlotte 109-106, en þetta var þriðja tap Charlotte í röð. Paul Pierce fór að vanda fyrir sínum mönnum í Boston og skoraði 28 stig, hirti 8 fráköst og gaf 10 stoðsendingar, en Jumaine Jones skoraði 21 stig fyrir Charlotte.

Minnesota vann nokkuð óvæntan sigur á Dallas 91-78. Dirk Nowitzki skoraði 23 stig fyrir Dallas og Kevin Garnett var einnig með 23 stig fyrir Minnesota og hirti auk þess 10 fráköst.

Chicago tapaði enn einum leiknum, nú á heimavelli fyrir Seattle Supersonics í fyrsta leik nýja þjálfarans Bob Hill sem tók við Seattle eftir að nafni hans Weiss var rekinn í gær. Rashard Lewis skoraði 21 stig fyrir Seattle og Ray Allen 20, en Ben Gordon skoraði 21 fyrir Chicago.

Meistarar San Antonio völtuðu yfir vængbrotið lið Portland 106-75. Tim Duncan skoraði 18 stig og hirti 13 fráköst fyrir San Antonio og Tony Parker var með 18 stig og 7 stoðsendingar. Jarrett Jack skoraði 15 stig fyrir Portland.

Denver vann auðveldan sigur á Indiana á heimavelli sínum 106-86. Earl Boykins og Carmelo Anthony skoruðu báðir 23 stig fyrir Denver, en Stephen Jackson var stigahæstur hjá Indiana með 21 stig.

Phoenix burstaði Philadelphia 105-85. Steve Nash skoraði 24 stig fyrir Phoenix þrátt fyrir að setjast á bekkinn eftir þriðja leikhlutann þegar úrslit leiksins voru ráðin, en hann vann Phoenix 35-16. Allen Iverson var stigahæstur í liði Philadelphia með 16 stig, en fékk sömuleiðis að hvíla sig í lokaleikhlutanum þegar úrslitin voru ráðin. Samuel Dalembert skoraði 14 stig og hirti 22 fráköst fyrir Philadelphia, sem var án Chris Webber vegna meiðsla hans í baki.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×