Menning

Á annað þúsund eintök seld

Óttar Martin Norðfjörð er í óðaönn við að dreifa ritinu í búðir.
Óttar Martin Norðfjörð er í óðaönn við að dreifa ritinu í búðir.

„Þetta er aldeilis búið að vinda upp á sig, mest allur minn frítími fer í að brjóta saman blöð og líma á þau strikamerki," segir Óttar Martin Norðfjörð, höfundur ævisöguhöfundur Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar prófessors.

Fyrsta „bindi" ævisögunnar, Hannes - Nóttin er blá, mamma hefur slegið óvænt í gegn og er í þriðja sæti metsölulista Eymundsson og hjá útgefenda voru öll eintök uppurinn. Óttar var í óðaönn við að dreifa ritinu í bókabúðir þegar Fréttablaðið truflaði hann. „Fyrsta upplag var þúsund eintök og ég varð því að gjöra svo vel að kveikja á ljósritunarvélinni og prenta annað til," segir Óttar. „Nú þegar er ég búinn að koma 500 eintökum til viðbótar í búðir."

Upphaflega stóð til að bókin yrði aðeins seld í bókabúðum Máls og Menningar á Laugavegi og Eymundsson í Austurstræti en í ljósi mikillar eftirspurnar verður einblöðungurinn til sölu í öllum verslunum Pennans-Eymundssonar á landinu. Óttar segir að þessar vinsældir komi sér á óvart en er sérstaklega glaður fyrir hönd Mæðrarstyrksnefndar sem fær allan ágóða af bókinni, sem kostar 999 krónur. „Í fyrstu hélt ég að það yrðu í mesta lagi nokkrir þúsundkallar en það er ljóst að það verður talsvert meira. Ég er auðvitað hæstánægður með það."



.
Hannes Hólmsteinn Gissurarson. Í ritinu er skautað yfir æsku hans og unglingsár.


.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.