Menning

Persónulegar kenndir

Sýnir myndskeið á mörkum listgreina.
Sýnir myndskeið á mörkum listgreina.

Nú eru síðustu forvöð að upplifa myndbands-sviðsetningu Kristínar Helgu Káradóttur í Listasafni ASÍ við Freyjugötu.  Sýningin nefnist „Þráðlaus tenging“ og er í svokallaðri Gryfju listasafnsins.  Listakonan kemur sjálf fram í stuttum myndskeiðum sem er varpað upp í Gryfjunni.  Myndskeiðin eru á mörkum þess að vera málverk, ljósmynd og kvikmynd. 

Myndböndin fléttast saman við sýningarsalinn sem umlykur þau með mjúkum leiktjöldum.  Til að undirstrika stemninguna hefur tónlistarmaðurinn Bjarni Guðmann úr hljómsveitinni Úlpu, samið tónlist við verkin.

Mörg af fyrri myndböndum Kristínar Helgu eru tilvistarlegs eðlis.  Þau lýsa kenndum eða aðstæðum sem áhorfandanum gefst kostur á að upplifa á sinn hátt.  Kristín Helga skipuleggur sjaldnast myndbönd sín fyrirfram heldur lætur þau ráðast í vinnuferlinu.  Hún vinnur út frá tilfinningunni og notar orðlausa og leikræna tjáningu.

Kristín Helga útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands árið 2004 með viðkomu í Listakademíunni í Kaupmannahöfn, sem skiptinemi.  Sýningin stendur til sunnudagsins 3. desember en safnið er opið  milli 13 og 17.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.