Minni vöxtur í jólaverslun í ár 29. nóvember 2006 07:00
Gert er ráð fyrir minni vexti í smásöluverslun um jólin en í fyrra og árið á undan. Rannsóknasetur verslunarinnar við háskólann á Bifröst segir um metár að ræða bæði árin á undan en líkur séu á að metið verði ekki slegið nú um jólin. Vöxturinn er sambærilegur og í Svíþjóð. Emil B. Karlsson, forstöðumaður Rannsókna-seturs verslunarinnar, segist búast við að jólaverslunin í ár muni vaxa um 9 prósent á föstu verðlagi á milli ára. Þetta jafngildir 8 milljarða króna veltu umfram meðaltal ársins eða 26.600 krónum á hvert mannsbarn. Á sama tíma í fyrra var vöxtur í jólaverslun 10 prósent á milli ára en 11 prósent árið á undan. Til samanburðar var vöxtur jólaverslunar í nóvember og desember um 5 prósent að meðaltali á árabilinu 2000 til 2005. Emil segir að dregið hafi úr einkaneyslu, innflutningur minnki og vextir hækki. Þá sé ekki jafn mikið um nýbyggingar nú og fyrri ár en það hafi í för með sér að fólk kaupir ekki jafn mikið af stórum hlutum á borð við stór heimilistæki. „Mér skilst reyndar að vegna þessa sé meiri velta í smærri hlutum í staðinn,“ segir hann.
Viðskipti Mest lesið Umdeild viðskipti fá ekki áheyrn Hæstaréttar Viðskipti innlent Mögulega búið að hakka sig inn á Teams samskiptin þín og fleira Atvinnulíf Hildur ráðin forstjóri Advania Viðskipti innlent Segir allar ásakanir fullkomlega tilhæfulausar Viðskipti innlent Atvinnuleysi eykst Viðskipti innlent Strákar og stálp fá styrk Viðskipti innlent Ása Steinars vann sigur gegn bandarísku markaðsfyrirtæki Viðskipti erlent Skipti í brúnni hjá Indó Viðskipti innlent 30 ár í Frakklandi: „Á Íslandi virðist fólk keyra sig mjög mikið út“ Atvinnulíf Bein útsending: „Landbúnaður er almannahagsmunir“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Segir allar ásakanir fullkomlega tilhæfulausar Bein útsending: „Landbúnaður er almannahagsmunir“ Strákar og stálp fá styrk Umdeild viðskipti fá ekki áheyrn Hæstaréttar Hildur ráðin forstjóri Advania Atvinnuleysi eykst Skipti í brúnni hjá Indó Smári Rúnar ráðinn fjármálastjóri „Það er gjá að myndast á leigumarkaðnum“ Viðar nýr sölustjóri Wisefish Ráðinn framkvæmdastjóri COWI á Íslandi Semja um fjögurra milljarða króna lán Þak styrkja til turnanna tveggja lækkað Efnt til nýrrar loðnuleitar í kapphlaupi við tímann Verður framkvæmdastjóri þróunarsviðs Emblu Medical Gjaldþrota meðhöndlari Auðunn ráðinn viðskiptastjóri Reita Ráðin mannauðs- og gæðastjóri Hörpu „Minnstu loðnuvertíð sögunnar að ljúka“ Hætta við breytta tollflokkun pítsaostsins Tryggja sér lóðir fyrir höfuðstöðvar á rúman milljarð Samkeppniseftirlitið segir samrunann auka samkeppni Landsvirkjun greitt út níutíu milljarða á fjórum árum Halda á miðin þrátt fyrir kvóta „upp í nös á ketti“ Þurfa að taka koffíndrykk á reynslu Stjórnir Samkaupa og Heimkaupa undirrita samrunasamning Örkvóti í loðnu gæti skilað milljarði í útflutningstekjur Afkoma ársins undir væntingum Harma ónákvæma tilkynningu Kauphallar Landsbankinn fór fýluferð í Landsrétt vegna Borgunar Sjá meira