Erlent

Geislavirkni vart í London

Lögregluþjónn kemur út úr húsi við Grosvernor Street í London þar sem fundist hafa merki um geislavirk efni. Litvinenko átti stutt erindi í þetta hús daginn sem hann veiktist.
Lögregluþjónn kemur út úr húsi við Grosvernor Street í London þar sem fundist hafa merki um geislavirk efni. Litvinenko átti stutt erindi í þetta hús daginn sem hann veiktist. MYND/AFP

Geislamengun hefur fundist á fimm stöðum í London, þar á meðal í skrifstofuhúsnæði rússneska auðkýfingsins og útlagans Boris Berezovskí. Leitað hefur verið að geislavirkum efnum í tengslum við mál Alexanders Litvinenko, fyrrverandi rússnesks njósnara sem lést af völdum geislavirka efnisins pólón-210.

Einnig fundust merki um slíka mengun á skrifstofu einkarekins öryggisþjónustufyrirtækis í London, en Litvinenko mun hafa átt þangað stutt erindi daginn sem hann veiktist.

Þrír menn, sem hafa komið á þessa staði eða hitt Litvinenko, þurfa að fara í rannsókn til að kanna hvort efnið hefur borist í líkama þeirra þar sem þeir sýna sum einkenni þess.

Litvinenko veiktist 1. nóvember og hafði þá hitt í London þrjá Rússa, Viacheslav Sokolenko, Andrei Lugovoj og Dmítrí Kovtún, á hótelbar og seinna um daginn ítalskan félaga sinn, Mario Scaramella, á japönskum veitingastað. Scaramella er einn þeirra þriggja sem grunur leikur á að hafi einnig orðið fyrir geislamengun.

Bæði hótelbarinn og veitingastaðurinn eru meðal þeirra staða, þar sem fundist hafa merki geislamengunar. Fimmti staðurinn er svo heimili Litvinenkos í norðanverðri borginni.

Litvinenko sagði að rússnesk stjórnvöld og sérstaklega Vladimír Pútín Rússlandsforseta bæru ábyrgð á því að draga sig til dauða. Pútín og rússneska leyniþjónustan FSB harðneita þessum ásökunum og segja þær fráleitar.

Hvernig staðið var að verki þykir þó renna stoðum undir að valdamiklar stofnanir hafi komið nálægt með einhverjum hætti. Geislavirka efnið Pólón-210 er afar sjaldgæft og samkvæmt upplýsingum á vef Geislavarna ríkisins er afar erfitt að nálgast banvæna skammta af því: „það er helst á sérhæfðum kjarnorkurannsóknastöðvum“ þar sem það er framleitt í kjarnakljúfum eða agnahröðlum.

Lögreglan í Bretlandi hefur þó ekki viljað fullyrða neitt um að morð hafi verið framið, heldur er lát Litvinenkos enn rannsakað sem óupplýst dauðsfall. Engin staðfesting hefur fengist á því hvenær banvæna efnið barst í líkama hans.

Litvinenko verður krufinn á föstudaginn og verða þá gerðar viðeigandi varúðarráðstafanir til að verjast geislamengun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×