Menning

Af ástum og örlögum

Félag um átjándu aldar fræði gengst fyrir málþingi í fyrirlestra-sal Þjóðarbókhlöðu í dag og hefst það kl. 13 og lýkur um kaffileytið. Þar verða flutt sex erindi fræðimanna um ýmislegt er lýtur að sögulegum minnum frá einkalífi þess tíma sem félagið einbeitir sér einkum að.

Kvonbænir og kaupöl heitir erindi Árna Björnssonar, dr. phil. Ísland í ljósi vestur-evrópsks hjúskaparmynsturs er efni Ólafar Garðarsdóttur, sagnfræðings. Djákninn á Reynisstað og kona klausturhaldarans - Af ástum Jóns Steingrímssonar og Þórunnar Hannesdóttur Scheving er efni Torfa K. Stefánssonar Hjaltalín, guðfræðings. Raunir biskupsdóttur - Þættir úr lífssögu Helgu Steinsdóttur er efni Sigurðar Péturssonar.

Ævisaga Guðrúnar Ketilsdóttur - sjálfsævisaga baráttukonu eða kímnisaga af flóni? spyr Guðný Hallgrímsdóttir sagnfræðingur. Skóp ástin örlög Þuríðar bóndadóttur? er viðfangsefni Þórunnar Guðmundsdóttur sagnfræðings.Flutningur hvers erindis tekur um 20 mínútur. Um 10 mínútur gefast til fyrirspurna og umræðna að loknu hverju erindi. Ágrip erinda liggja frammi á málþinginu. Þau verða síðar aðgengileg á heimasíðu félagsins: www.akademia.is/18.oldin.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.