Menning

Ævar Örn seilist í Glerlykilinn í vor

Ævar örn Jósepsson tilnefndur til norrænna glæpasagnaverðlauna fyrir Blóðberg.
Ævar örn Jósepsson tilnefndur til norrænna glæpasagnaverðlauna fyrir Blóðberg.

Glerlykillinn, hin norrænu verðlaun glæpasagnanna, er nú í undirbúningi og taka brátt að birtast tilnefningar frá valnefndum í hverju landi. Dómnefnd Hins íslenska glæpafélags hefur lokið störfum og tilnefnir eina íslenska glæpasögu útgefna árið 2005 til að keppa um Glerlykilinn, verðlaun Norrænu glæpasamtakanna SKS, Skandinaviska Kriminalsällskapet.

Glerlykillinn fyrir bestu norrænu glæpasöguna árið 2005 verður svo afhentur vorið 2007. Nefndin var á einu máli um að tilnefna Blóðberg eftir Ævar Örn Jósepsson og segir í úrskurði nefndarinnar: Þriðja glæpasaga Ævars Arnar Jósepssonar, Blóðberg, nýtir sér Kárahnjúka sem sögusvið; afskekktan stað þar sem fram fara umdeildar framkvæmdir og þar sem fólk úr öllum áttum kemur saman. Þetta býður upp á fjöruga frásagnarmöguleika sem Ævar vinnur vel úr í skemmtilegri úrvinnslu á sígildu formi glæpasögunnar.

Dregin er upp skýr mynd af fjölbreyttum persónum, fléttan er fimlega unnin og stíllinn er leikandi léttur í spennandi frásögn. Blóðberg verður því framlag Hins íslenska glæpafélags til Glerlykilsins 2005 sem afhentur verður næsta vor. Í dómnefnd Hins íslenska glæpafélags voru Gunnþórunn Guðmundsdóttir, Kristín Árnadóttir og Kristján Jóhann Jónsson. Þau munu einnig sitja í dómnefnd SKS um bestu norrænu glæpasöguna útgefna árið 2005.

Vegur Ævars eykst nokkuð með þessu en nýja sagan hans, Sá yðar sem syndlaus er, fékk í gær fjögurra stjörnu dóm hér í Fréttablaðinu. Hann flutti sig um set í haust frá þeim Eddu-mönnum og settist að í Uppheimum, forlagi Kristjáns Kristjánssonar á Akranesi. Glerlykillinn er svo nefndur til heiðurs Dashiell Hammett, einum af frumkvöðlum glæpasögunnar vestanhafs.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.