Erlent

Andstæða forverans

Gates og Bush Væntanlegur varnarmálaráðherra ásamt forseta Bandaríkjanna.
Gates og Bush Væntanlegur varnarmálaráðherra ásamt forseta Bandaríkjanna. MYNF/AFP

Robert Gates, næsti varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, þykir að flestu leyti alger andstæða Donalds Rumsfeld, sem hættir nú í kjölfar þingkosninganna á þriðjudaginn.

Rumsfeld þykir harður í horn að taka, hvatvís og áræðinn, en Gates lætur minna yfir sér, fer sér hægar og kýs að ígrunda hlutina áður en hann framkvæmir. Hann hefur aldrei haft mikið álit á því hvernig staðið hefur verið að stríðinu í Írak.

Gates hefur undanfarna mánuði tekið þátt í ítarlegri rannsókn á framkvæmd stríðsins í Írak, þar sem hann situr í rannsóknarnefndinni um Írak sem James Baker, fyrrverandi utanríkisráðherra, er í forsvari fyrir.

Niðurstöður skýrslunnar á að birta núna á næstunni, þegar kosningarnar eru afstaðnar, en fyrir kosningarnar komust fjölmiðlar yfir upplýsingar úr henni þar sem fram kemur hörð gagnrýni á stríðsreksturinn.

Með því að gera Gates að varnarmálaráðherra í stað Rumsfeld þykir nokkuð ljóst að Bush ætli sér að fara að tillögum nefndarinnar og gera veigamiklar breytingar á því hvernig staðið er að málum í Írak.

Gates er 63 ára og hefur allt fram á síðustu ár starfað innan leyniþjónustunnar CIA. Hann gekk til liðs við hana ungur maður árið 1966, þá nýskriðinn úr háskólanámi í sagnfræði og hafði aflað sér sérfræðiþekkingar á málefnum Sovétríkjanna. Árið 1991 gerði síðan George H.W. Bush, þáverandi forseti, Gates að yfirmanni leyniþjónustunnar.

Gates sætti gagnrýni á sínum tíma, meðal annars vegna tengsla við Iran-Contra málið, þegar bandarísk stjórnvöld urðu uppvís að því að selja vopn til Írans og nota hagnaðinn til stuðnings Contra-skæruliðum í Níkaragva.

Undanfarin sjö ár hefur Gates haldið sig innan veggja Texas A&M háskólans, fyrst sem yfirmaður stjórnmálafræðideildar sem kennd er við George H.W. Bush eldri, en síðustu tvö árin sem rektor alls háskólans.

Á síðasta ári hafnaði Gates boði frá Bush um að gerast æðsti yfirmaður allra leyniþjónustustofnana Bandaríkjanna, embætti sem John Negroponte gegnir nú.

Ferill Gates

1943 Fæddur í Wichita, Kansas.

1966-74 Starf hjá CIA.

1974 Doktorsgráða frá Georgetown-háskóla.

1974-79 Situr í Þjóðaröryggisráði Bandaríkjanna.

1979 Aftur til CIA.

1982-89 Einn af aðstoðaryfirmönnum hjá CIA.

1989-91 Aðstoðarþjóðaröryggisráðgjafi Bandaríkjanna.

1991-93 Yfirmaður CIA.

1999-2001 Formaður stjórnmálafræðideildar við Texas A&M háskólann.

2002-2006 Rektor Texas A&M.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×