Menning

Ljósmyndasýning frá Grænlandi

Taflfélagið Hrókurinn hefur haft frumkvæði og starfað ötullega að skákkennslu fyrir grænlensk börn.
Taflfélagið Hrókurinn hefur haft frumkvæði og starfað ötullega að skákkennslu fyrir grænlensk börn.

Í tengslum við skákmaraþon sem nú stendur yfir í Kringlunni er efnt til ljósmyndasýningar þar sem gefur að líta myndir frá Grænlandi.

Forsprakki Taflfélagsins Hróksins, Hrafn Jökulsson, hefur setið við taflborðið frá því í gærmorgun en hann ætlar sér að tefla í 40 klukkustundir og ljúka um 250 skákum. Tilgangur þessa mara-þons er að vekja athygli á starfi Hróksins og félaga á Grænlandi, einkum meðal yngstu kynslóðarinnar, en þar hafa Hróksmenn meðal annars staðið fyrir skákkennslu.

Áheitum hefur verið safnað og verða þau notuð til að fjármagna leiðangur Hróksins til Austur-Grænlands í nóvember.

Á sýningunni eru glæsilegar myndir af stórbrotinni náttúrufegurð Grænlands sem og myndir úr félagsstarfi Hróksins og gefst gestum og gangandi tækifæri á að að kaupa myndirnar og mun ágóði þeirra renna óskertur í Grænlandssjóð Hróksins og Kalaks. Hrókurinn stendur fyrir maraþoninu í samvinnu við Vodafone, Kalak, vinafélag Íslands og Grænlands, Kátu biskupana, Skák-íþróttafélag stúdenta við Háskólann í Reykjavík, Pallaklúbbinn, Vin og Fjölni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.