Menning

List til að taka með

Alice Clarke myndlistarkona Sýnir mósaíkverk á Café Oliver.
Alice Clarke myndlistarkona Sýnir mósaíkverk á Café Oliver. MYND/Valli

Myndlistarkonan Alice Olivia Clarke sýnir mósaíkverk sín á efri hæð skemmtistaðarins Café Oliver á Laugavegi. Myndirnar eru unnar í tengslum við innsetningu hennar sem þegar prýðir staðinn en listamaðurinn kennir sýninguna við „Take away“ því líkt og gestir geta tekið með sér mat af veitingahúsum geta þeir einnig notið andrúmsloftsins á staðnum og síðan tekið listina með sér heim.

Uppistaðan í verkum Alice eru steinflísar með mismunandi áferð sem hún sker eða brýtur en þeim blandar hún oft saman við steinvölur héðan og þaðan.

Alice Clarke hefur verið búsett hér á landi frá 1993 og haldið fjölda sýninga, verk hennar má til dæmis sjá í Bókasafni Hafnarfjarðar og á veitingahúsinu Vegamótum við Vegamótastíg.

Sýningin er opin á þjónustutíma skemmtistaðarins en í dag verður formleg opnun milli kl. 13 og 16. Listakonan verður á staðnum og spjallar við gesti. Sýningin stendur til 1. desember.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.