Erlent

Stoppaði í tíu daga samfleytt

Cornwall á Englandi
Bretar, líkt og Íslendingar, myndu þjást vegna breytinga á Golfstraumnum.
Cornwall á Englandi Bretar, líkt og Íslendingar, myndu þjást vegna breytinga á Golfstraumnum.

Bretland Golfstraumurinn stoppaði í tíu daga í nóvember 2004, að sögn vísindamanna sem starfa við National Oceanography Centre í Southampton á Bretlandi.

"Við höfum aldrei séð neitt þessu líkt áður og við skiljum þetta ekki. Við vissum ekki að þetta gæti gerst,“ hefur breska dagblaðið Guardian eftir Harry Bryden vísindamanni sem tilkynnti um stöðvunina á ráðstefnu haffræðinga í Birmingham á dögunum.

Bryden og félagar hans hafa miklar áhyggjur af þessari uppgötvun, sem þeir segjast telja stafa af gróðurhúsaáhrifunum og örri hlýnun jarðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×