Erlent

Dæmdur á réttargeðdeild

Sænskir dómstólar dæmdu 43 ára gamlan kirkjuvörð, sem játaði að hafa haft mök við lík konu, á réttargeðdeild í gær, kom fram á fréttavef Dagens Nyheter. Maðurinn var jafnframt ákærður fyrir að hafa kveikt í kirkju í Surahammars.

Málið hefur vakið gríðarlega athygli í Svíþjóð, enda hefur slíkt mál ekki komið fyrir dómstóla þar fyrr.

Kirkjuvörðurinn, sem sagðist hafa verið afar einmana og eiga við áfengisvandamál að stríða, talaði um sjálfan sig í þriðju persónu þegar hann lýsti verknaði sínum fyrir réttinum.

Aðstandendur látnu konunnar fóru í fyrstu fram á skaðabætur, en hafa dregið þá kröfu til baka.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×