Erlent

Urðu hræddir við síðskegg

„Þeir komu fram við mig eins og íslamskan hryðjuverkamenn vegna þess hvernig ég er útlits,“ sagði Pablo Gutierrez Vega, spænskur lagaprófessor á fertugsaldri, síðskeggjaður mjög, sem lenti heldur betur í hremmingum þegar hann sat um borð í þýskri farþegaflugvél á leiðinni frá Sevilla á Spáni til Dortmund í Þýskalandi.

Þegar vélin millilenti á Mallorca tókst þremur þýskum farþegum að neyða hann út úr vélinni, en flugmaður vélarinnar kom honum þá til bjargar, baðst afsökunar á atvikinu og bauð honum að koma aftur um borð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×