Erlent

Gusenbauer næsti kanslari

Gusenbauer og Schüssel Alfred Gusenbauer, leiðtogi jafnaðarmanna, og Wolfgang Schüssel, fráfarandi kanslari og leiðtogi íhaldsmanna, takast í hendur í sjónvarpssal að kvöldi kjördags.
Gusenbauer og Schüssel Alfred Gusenbauer, leiðtogi jafnaðarmanna, og Wolfgang Schüssel, fráfarandi kanslari og leiðtogi íhaldsmanna, takast í hendur í sjónvarpssal að kvöldi kjördags. MYND/AP

Wolfgang Schüssel, kanslari Austurríkis og leiðtogi Þjóðarflokksins ÖVP, baðst í gær lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt, tveimur dögum eftir þingkosningar í landinu. Þau óvæntu úrslit urðu í kosningunum að jafnaðarmenn hrósuðu sigri, hlutu hálfu öðru prósentustigi meira fylgi en flokkur Schüssels.

Á grundvelli þessara úrslita getur Alfred Gusenbauer, formaður austurríska Jafnaðarmannaflokksins SPÖ, gert tilkall til kanslarastólsins. Hann segist gera ráð fyrir að fara í stjórnarmyndunarviðræður annað hvort við ÖVP eða græningja.

SPÖ fékk 35,7 prósent atkvæða en ÖVP 34,2 prósent. Þriðji stærsti flokkurinn varð Frelsisflokkurinn með 11,2 prósent atkvæða, en hann beitti sér í kosningabaráttunni fyrir hertri stefnu gegn innflytjendum. Klofningsframboð Jörgs Haiders og fylgismanna hans, Bandalag fyrir framtíð Austurríkis (BZÖ), fékk rétt yfir þeim fjórum prósentustigum sem er lágmarkið til að fá úthlutað þingsætum.

Þessi úrslit gætu reyndar breyst, þar sem utankjörfundaratkvæði verða ekki talin fyrr en í næstu viku. Mestu myndi breyta ef BZÖ félli niður fyrir fjögurra prósenta þröskuldinn, en þar með myndu þingsæti hans deilast á hina flokkana og væntanlega gera jafnaðarmönnum og græningjum mögulegt að mynda tveggja flokka meirihluta saman. Sá meirihluti yrði hins vegar mjög naumur. Enda þykir stjórnmálaskýrendum líklegast í stöðunni að stóru flokkarnir tveir myndi saman stjórn undir forystu Gusenbauers. Þessir tveir flokkar stjórnuðu landinu í helmingaskiptastjórn í 45 ár. Það var til að brjóta það stjórnarmynstur upp sem Schüssel valdi þann kostinn fyrir sex og hálfu ári að mynda stjórn með Frelsisflokknum, sem kallaði pólitískar refsiaðgerðir yfir landið af hálfu leiðtoga Evrópusambandsins. Á þeim tíma var meirihluti ríkisstjórna aðildarríkjanna undir forystu jafnaðarmanna sem þóttu Frelsisflokkurinn ekki ríkisstjórnartækur.

Stjórnarmeirihluti ÖVP og Frelsisflokksins hélt naumlega velli í kosningunum 2002, en í fyrra klofnaði Frelsisflokkurinn og fylgismenn Haiders stofnuðu BZÖ. BZÖ-menn, undir forystu Peters Westenthalers, héldu stjórnarsamstarfinu við ÖVP áfram en Frelsisflokksmenn fóru í stjórnarandstöðu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×