Einokun á lénsskráningunni .is 18. september 2006 04:00 Vefsíða fyrirtækisins. Forstjóri Póst- og fjarskiptastofnunar segir að vissulega hafi verið rætt um hvort fleiri en einn aðili ætti að fá að skrá lén með endingunni .is
Skráning léna með endinguna .is er í höndum einkaaðila á Íslandi, ólíkt flestum öðrum löndum. Internet á Íslandi hf., sem er í eigu Dagsbrúnar, hefur einkaleyfi á því að skrá lén sem hafa .is endinguna. Kostnaður við að skrá lén er mun hærri hér en í löndunum í kringum okkur. Árið 1987 var SURIS, Samtökum um upplýsinganet rannsóknaraðila á Íslandi, úthlutað einkaleyfi á skráningu léna með endinguna .is af alþjóðlegu internetsamtökunum IANA. Átta árum síðar tók Internet á Íslandi hf. við úthlutun lénanna. Fyrirtækið var síðar selt Íslandssíma og er nú í eigu Dagsbrúnar. Það hefur einkarétt á skráningu léna með þessa endingu. Leyfið, sem er gefið út af IANA, hefur engin sérstök tímamörk. "Í langflestum tilfellum er skráning þjóðarléna í höndum stofnana sem eru annað hvort í eigu ríkis viðkomandi lands eða allra hagsmunaaðila sem koma að málinu," segir Maríus Ólafsson, netstjóri hjá Internet á Íslandi. "Hér er reksturinn hins vegar í eigu aðeins eins af hagsmunaaðilunum. Það er ekkert leyndarmál." Hrafnkell Gíslason, forstjóri Póst- og fjarskiptastofnunar, segir heppilegt fyrir alla aðila ef skoðað væri hvort stjórnvöld ættu að setja almennar reglur um úthlutun á lénum. "Það má ræða með hvaða hætti heimildin til úthlutunarinnar væri gefin út. Vissulega hefur verið rætt um hvort fleiri en einn aðili ætti að fá að skrá lén með .is-endingunni." "Okkar afstaða er mjög einföld, við teljum einokun alltaf af hinu verra fyrir neytendur," segir Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna. "Ef nauðsynlegt er að vera með einokun á einhverju sviði þá er sjónarmið Neytendasamtakanna að það eigi að vera í höndum hins opinbera." Stofngjald léns með endinguna .is hjá Internet á Íslandi er 12.450 krónur. Árgjald sama léns er síðan 7.918 krónur. Til samanburðar kostar tæpar fimm þúsund krónur að stofna lén með endinguna .fo í Færeyjum, en samanburður við Færeyjar liggur beinast við vegna staðsetningar og markaðsstærðar. Þar er árgjaldið 5.500 krónur. Skráning á léni með endinguna .com kostar að meðaltali um þúsund krónur á ári og er án sérstaks stofngjalds.
Innlent Mest lesið Bein útsending: „Óveður aldarinnar“ skellur á Flórída Erlent Sprengdu upp vöruskemmu fulla af drónum Erlent Foreldrar í Laugalækjarskóla uggandi yfir mögulegu verkfalli Innlent Gætu ekki flúið þótt þau vildu Erlent Undraverður bati með háþrýstimeðferð Innlent Heimilislæknar upplifi stundum pressu á að skrifa lyfin út Innlent Erlendur ferðamaður fannst látinn við Stuðlagil Innlent Ökumaðurinn liðlega tvítugur Innlent Stefna á að opna sundlaugar í Reykjavík í fyrramálið Innlent Öllum sundlaugum á höfuðborgarsvæðinu lokað Innlent Fleiri fréttir Foreldrar í Laugalækjarskóla uggandi yfir mögulegu verkfalli Heimilislæknar upplifi stundum pressu á að skrifa lyfin út Stefna á að opna sundlaugar í Reykjavík í fyrramálið Ísland í mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna Vísa á bug kenningu um að stjórnarsamstarfið tóri á styrkveitingum Undraverður bati með háþrýstimeðferð Þurfa ekki að greiða vegna viðskiptavina sem borguðu ekki fyrir bílastæði Kvíðin í aðdraganda hamfara og spenna í þingheimi Hagstofan biðst velvirðingar og tekur talnaefnið úr birtingu The Guardian fjallar um túrismann sem gleypi íslenska tónleikastaði Erlendur ferðamaður fannst látinn við Stuðlagil Öllum sundlaugum á höfuðborgarsvæðinu lokað Hlaut lífshættulega áverka vegna stunguárásar Árekstur á Eyrarbakkavegi Ríkisstarfsmenn ofmetnir um fimm þúsund Báðu um paramynd og augnabliki síðar var veskið horfið Bilun gæti valdið heitavatnsleysi víðar Hæstánægð með Höllu „Við sjáum afleiðingar þess að vinna ekki fyrir ofan fossinn“ Telur að Óli Björn líti svo á að VG hafi kastað stríðshanskanum Stjórnarsamstarfi efnislega lokið? Vongóð um að Ísland fái sæti í mannréttindaráðinu Ökumaðurinn liðlega tvítugur Réðst á fyrrverandi kærustur og aðstoðarslökkviliðsstjóra Telja óstaðbundin störf of kostnaðarsöm Kom skemmtilega á óvart að hitta Margréti Danadrottningu Ríkisstjórnin á valdi „minnsta og veikasta“ flokksins Nú má keyra á nagladekkjum í borginni Sigríður Hrönn Elíasdóttir er látin Enn eitt barnið sem dettur ofan í holu Sjá meira