Erlent

Murkowski tapar fyrir Palin

Sarah Palin
Sarah Palin

Ríkisstjóri Alaska, Frank Murkowski, fær ekki að bjóða sig fram til starfans á ný. Flokkssystur- og bræður hans í Repúblikanaflokknum kusu Söruh Palin, fyrrum borgarstýru Wasilla, með 51 prósenti atkvæða á þriðjudagskvöld.

Murkowski hefur skapað sér miklar óvinsældir undanfarið og er hann einn verst látni ríkisstjóri allra tíma í Alaska. Sást það greinilega í þeim 19 prósentum atkvæða sem hann hlaut í forkosningunum.

Óvinsældirnar hefur hann bakað sér með umdeildum ákvörðunum og meintri auðsveipni við olíu- og gasfyrirtæki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×