Erlent

Þungavatnsverk-smiðja vígð í Íran

Mahmoud Ahmadinejad vígir verksmiðjuna Íransforseti sést hér vígja þungavatnsverksmiðjuna í miðhluta Írans. Hann segir kjarnorkuáætlun þjóðarinnar ekki ógna öðrum ríkjum, en Ísraelar og bandamenn þeirra taka ekki í sama streng.
Mahmoud Ahmadinejad vígir verksmiðjuna Íransforseti sést hér vígja þungavatnsverksmiðjuna í miðhluta Írans. Hann segir kjarnorkuáætlun þjóðarinnar ekki ógna öðrum ríkjum, en Ísraelar og bandamenn þeirra taka ekki í sama streng. MYND/AP

Mið-Austurlönd Forseti Írans, Mahmoud Ahmadinejad, vígði í gær þungavatnsverksmiðju í bænum Arak í miðhluta Írans. Þungavatnsverkmiðjan verður notuð til að kæla kjarnaofn sem er í byggingu nálægt verksmiðjunni. Forsetinn sagði við tækifærið að Íransstjórn myndi „aldrei“ hætta við kjarnorkuáætlun sína og að tilgangur hennar væri alls ekki hernaðarlegs eðlis. Hann sendi vesturveldunum tóninn og sagði að svo gæti farið að Íranir yrðu beittir viðskiptaþvingunum en að þróun og tækniframförum yrði ekki haldið frá þeim.

Kjarnorkuáætlunin ógnaði ekki öðrum þjóðum, „ekki einu sinni stjórn síonista, sem er augljós óvinur svæðisins“.

Ráðamenn margra annarra ríkja, sérstaklega Bandaríkjanna og Ísraels, óttast að ríkisstjórn Írans ætli sér að framleiða kjarnorkusprengjur og sagði einn ísraelskur þingmaður í gær að verksmiðjan væri „enn eitt skrefið“ í átt að því að Íranar framleiddu kjarnorkusprengju. Hann sagði einnig að aðgerðir alþjóðasamfélagsins til að koma í veg fyrir kjarnorkuvæðingu Írana væru ófullnægjandi og því væri nauðsynlegt fyrir Ísraelsmenn að „undirbúa sig með viðhlítandi hætti“. Ísraelsk yfirvöld gáfu ekki út yfirlýsingu vegna málsins í gær, en opinber stefna ísraelskra stjórnvalda hefur hingað til verið sú að reyna að semja við Íransstjórn um aðra lausn á orkuþörf landsins.

Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hefur skipað írönskum yfirvöldum að hætta tilraunum sínum um auðgun úrans og eiga ráðamenn í Teheran að verða við því fyrir næstkomandi fimmtudag. Stjórnmálaskýrendur segja það líklega ekki tilviljun að verksmiðjan hafi verið vígð svo skömmu áður en frestur íranskra yfirvalda rennur út; þau vilji ögra öryggisráðinu.

Fyrir fjórum árum komst bærinn Arak í sviðsljósið þegar íranskur útlagi ljóstraði upp um kjarnorkustarfsemi Íransstjórnar þar, en hún hafði aldrei verið kynnt fyrir Alþjóða kjarnorkumálastofnuninni. Stefnt er á að kjarnaofninn verði gangsettur árið 2009.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×