Erlent

Krefjast frelsis fyrir fangelsaða múslima

Kvarta ekki undan aðbúnaði Gíslarnir Olaf Wiig og Steve Centanni virtust vel haldnir, íklæddir íþróttagöllum, á myndbandsupptökunni sem birt var í gær.
Kvarta ekki undan aðbúnaði Gíslarnir Olaf Wiig og Steve Centanni virtust vel haldnir, íklæddir íþróttagöllum, á myndbandsupptökunni sem birt var í gær. MYND/AP

Áður óþekktur hópur herskárra Palestínumanna sendi í gær frá sér myndband sem sýndi tvo fréttamenn Fox-sjónvarpsstöðvarinnar bandarísku, en þeim var rænt á Gazasvæðinu þann 14. ágúst síðastliðinn.

Mannræningjarnir krefjast þess að í skiptum fyrir gíslana verði allir mús-limar í bandarískum fangelsum látnir lausir innan þriggja sólarhringa.

Á myndbandsupptökunni, sem send var arabísku gervihnattasjónvarpsstöðinni Al-Jazeera, sjást Steve Centanni, sem er sextugur Bandaríkjamaður sem lengi hefur starfað sem fréttamaður fyrir Fox, og myndatökumaðurinn Olaf Wiig, sem er 36 ára og frá Nýja-Sjálandi. Þeir láta þess báðir getið að þeir fái góða meðhöndlun í prísundinni en kalla eftir hjálp við að fá sig lausa. Myndbandið var fyrsta lífsmarkið frá tvímenningunum frá því þeir hurfu af vettvangi í Gaza fyrir tíu dögum.

Í yfirlýsingu sem fylgdi upptökunni er því lýst yfir, í nafni „Heilögu heilags-stríðs-hersveitanna“ að gíslarnir verði þá aðeins látnir lausir að allir múslimar í bandarískum fangelsum verði látnir lausir innan þriggja sólarhringa. Einskis var getið um hvað myndi gerast ef ekki yrði gengið að þessum kröfum.

Þótt herskáir Palestínumenn hafi oft tekið erlenda gísla til að þrýsta á um lausn palestínskra fanga í Ísrael er þetta í fyrsta sinn sem palestínskir gíslatökumenn gera kröfur til yfirvalda í öðru ríki en Ísrael.

Talsmenn palestínsku heimastjórnarinnar, þar á meðal Ismail Haniyeh forsætisráðherra, hafa skorað á gíslatökumennina að láta Centanni og Wiig lausa.

Í flestum fyrri tilfellum þar sem útlendingum hefur verið rænt á palestínsku sjálfsstjórnarsvæðunum hafa gíslarnir verið í góðu yfirlæti, oft boðið te heima í stofu hjá fjölskyldum mannræningjanna, kröfur gíslatökumannanna takmarkast við að tilteknir fangar Ísralea yrðu látnir lausir, og búið að semja um frelsi fyrir gíslana á sama sólarhring og þeim var rænt. Í þetta sinn er allt annað uppi á teningnum, enginn lýsti yfir ábyrgð á hvarfi mannanna í meira en viku og kröfurnar eru aðrar og meiri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×