Erlent

Myrti dætur sínar

Þrítugur Dani var í gær dæmdur í sextán ára fangelsi fyrir morðið á tveimur dætrum sínum. Þetta kemur fram á fréttavef Politiken.

Telpurnar voru tveggja og sjö ára þegar faðir þeirra stakk þær með hníf í desember í fyrra. Hann tilkynnti sjálfur um atburðinn, en hótaði að fleygja sér af Stórabeltisbrúnni þegar lögreglan reyndi að handtaka hann.

Í réttarsal sagðist maðurinn ekki vita hvað honum hefði gengið til og bar fyrir sig minnisleysi. Jafnframt sagðist hann gera sér grein fyrir því að hann myndi hljóta harða refsingu, en að hún væri þó léttbær miðað við refsinguna sem hann hefði sjálfur skapað sér þegar hann banaði börnum sínum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×