Erlent

Fjórar mörgæsir drepast í bílslysi

Fjórar mörgæsir og nokkrir hitabeltisfiskar drápust þegar bíll sem flutti dýrin valt á hraðbraut í Texas í Bandaríkjunum á þriðjudag. Tuttugu og einni mörgæs var bjargað. Kolkrabbi sem var einnig í bílnum slapp ómeiddur. Þetta kemur fram á vef bandarísku fréttastöðvarinnar CNN.

Lögreglumaður sem kom á vettvang segir slysið vera það allra furðulegasta sem hann hafi séð. „Ég hef séð bílslys þar sem kýr, hestar og svín koma við sögu en þetta er í fyrsta skipti sem dýrin eru mörgæsir.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×