Erlent

Sprengjuregnið var óþægilega nálægt

hart barist á srí lanka Ekkert lát er á deilum stríðandi fylkinga í Srí Lanka. Norrænar eftirlitssveitir flúðu undan stórskotahríð stjórnarhersins á sunnudag.
hart barist á srí lanka Ekkert lát er á deilum stríðandi fylkinga í Srí Lanka. Norrænar eftirlitssveitir flúðu undan stórskotahríð stjórnarhersins á sunnudag. MYND/AP

Sigurður Gíslason, íslenskur eftirlitsmaður með vopnahléi á Srí Lanka, lenti á sunnudag í skotárás í norðausturhluta landsins, nálægt bænum Tricomalae. Sigurður var í för með norrænum eftirlitsmönnum og málamiðlum, þar á meðal danska eftirlitsmanninum Ove Jensen.

„Við vorum fimm sem fórum inn á svæðið í þeim tilgangi að skrúfa frá vatnsveitu sem stjórnarherinn hafði lokað fyrir. Við vorum klukkutíma á undan áætlun og því má segja að við höfum verið á röngum stað á röngum tíma,“ segir Sigurður. „Stjórnarherinn hóf stórskotaárás á svæðinu og við vorum óþægilega nálægt sprengjuregninu. Sprengjur féllu með um fimm til tíu sekúndna millibili og við gátum ekkert annað gert en að hörfa. Við fundum frumskógarslóða til að fara út sem fyrst, okkur tókst það og vorum komnir úr hættu eftir um tíu mínútur.“ Norrænu eftirlitsmennirnir sluppu allir ómeiddir.

Fréttir bárust af því í gær að fimmtán starfsmenn franskra hjálparsamtaka hefðu fundist látnir í bænum Muttur í norðausturhluta Srí Lanka. Líkin fundust á skrifstofu hjálparsamtakanna. Að sögn Þorfinns Ómarssonar, blaðafulltrúa eftirlitssveita með vopnahléi, höfðu friðargæsluliðar ekki enn fengið aðgang að svæðinu. „Við höfum ekki náð að rannsaka hvort fréttir af þessu máli eru réttar,“ sagði Þorfinnur þegar Fréttablaðið náði tali af honum seint í gærkvöldi. „Það er skylda okkar að rannsaka svona mál en við höfum enn ekki komist á svæðið. Vegna öryggisástæðna förum við ekki með okkar fólk þangað strax.“ Búðir norrænu sveitanna eru í nokkurri vegalengd frá átakasvæðinu.

Þorfinnur segir bardaga í norðausturhluta Srí Lanka hafa harðnað til muna síðustu tvær vikur. „Við höfum þó ekki þurft að grípa til neinna sérstakra varúðarráðstafana í ljósi atburða,“ segir Þor­finnur. „Tekin var formleg ákvörðun fyrir rúmri viku að sveitir frá Svíþjóð, Danmörku og Finnlandi myndu fara um næstu mánaðamót en ekkert hefur verið rætt um brottför Íslendinga eða Norðmanna. Jon Hanssen-Bauer, sendifulltrúi og samningamaður Norðmanna er staddur á svæðinu og stendur í viðræðum við stríðandi fylkingar. Áður en framhaldið er ákveðið verður látið reyna á hvað kemur út úr þeim viðræðum.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×