Innlent

Ekki ákveðið með áfrýjun

Stjórn Og Vodafone hefur ekki enn ákveðið hvort úrskurði Póst- og fjarskiptastofnunar um skyldulækkun á lúkningagjöldum verði áfrýjað.

Póst- og fjarskiptastofnun hefur skyldað farsímafélögin til þess að lækka lúkningagjöld niður í 7,49 krónur á mínútu fyrir 1. júní 2008. Lækkunin verður í fjórum þrepum og er fyrsta lækkunin 1. september næstkomandi.

Forstjóri Og Vodafone greindi frá því í gær að fyrirtækið íhugaði að áfrýja úrskurðinum. Síminn fagnar lækkuninni, þar sem hún sé til hagsbóta fyrir neytendur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×