Erlent

SÞ kalla eftir lokunum

 Bandaríkjunum ber að loka öllum leynifangelsum sínum þegar í stað og heimila starfsfólki Rauða krossins aðgang að hverjum þeim fanga sem haldið er í tengslum við vopnuð átök. Þetta kemur fram í skýrslu mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna.

Bandaríkin hafa verið gagnrýnd mikið undanfarið, eftir að upp komst um leynifangelsi þeirra sem herinn er sagður reka víða um heim. Talsmaður utanríkisráðuneytis Bandaríkjanna sagði nefndina ekki hafa tekið til greina mikið af upplýsingum sem það hefði útvegað henni og að niðurstöðurnar væru utan verksviðs nefndarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×